Bloggsvæði Bjöllu67

Velkomin(n) á mitt blogg

19.01.2007 13:24:29 / Bjalla67

vigtun númer tvö á nýja árinu

Jæja náði að skella mér í vigtun í gær en þar sem ég var svo ógeðslega slöpp í síðustu viku þá meikaði ég einfaldlega ekki að fara en það fóru 2,3 kíló á þessum 2 vikum sem er alveg helvíti gott bara það eru farinn 45,4 kíló allt í allt og bara 10 kíló eftir jibbí þetta fer að verða búið og þá tekur aðal verkefnið við sem er að halda þessu. En það er búið að vera þvílíkt ástand á heimilinu litli stubburinn var að byrja á leikskóla og ég er að byrja að vinna þar, sem er ekki í frásögu færandi nema að hann byrjaði í aðlögun á þriðjudaginn í síðustu viku og gat mætt þriðjudag og miðvikudag en var svo orðinn veikur á fimmtudeginum og fór ekkert meira þá vikuna fór með hann til eyrnalæknis og hann var kominn með eyrnabólgu og var skráður í rör og nefkirtlatöku 28 febrúar, svo við mætum hress og kát á mánudeginum og ég byrja aðeins að vinna en við erum bara stutt, komum svo aftur á þriðjudeginum en náðum ekki að lengjatíman neitt þar sem litli stubbur var nú ekkert mjög hrifin af því að vera þarna, en á miðvikudeginum var hann aðeins lengur en var samt voða lítill í sér og átti ógurlega bátt og var þannig það sem eftir var dagsins svo er hann orðinn eitthvað voðalega heitur um kvöldið svo ég mæli hann jú,jú kominn með 39 stiga hita og mjög ljótan hósta svo nú er hann bara heima og búinn að vera að rokka frá 38 upp í 40 stiga hita, en hann virðist nú aðeins vera að hressast en honum verður haldið inni framm yfir helgi, sem er frekar fúlt þar sem okkur er boðið í barnaafmæli á sunnudaginn en það er svo sem lítið við þessu að gera. Annars erum við búinn að festa okkur einbýlishús og verður gengið frá kauptilboði eftir c.a. 2 vikur það er í Hafnarfirði við hliðina á mömmu og pabba mjög hentugt þar sem það verður stutt í barnapíurnar ha,ha,ha. Við erum rosalega spent yfir þessu, þetta er hús á tveimur hæðum með bílskúr, kjallara og háalofti og er hugmyndinn að loka á milli hæða til að byrja með og leigja út neðri hæðina á meðan við komum okkur vel af stað með þetta. Svo erum við búinn að selja jeppan okkar búhúhúhúhúhú en við neiddumst til að gera það fáum annan bíl upp í sem við ætlum svo að skipta upp í enn annan sem við eigum bara eftir að finna, svo erum við líka búinn að selja annan bíl sem við eigum svo það virðist allt vera að ganga upp hjá okkur þessa dagan og lífið bara ljúft. Jæja helda að þetta sé svona það markverðasta í bili kveðja Anna Panna


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 23:56:26 / Bjalla67

Gleðileg jól og nýtt ár og liggur við páska líka

Jæja já maður titlar sig sem bloggara en vá ég held að ég fari að loka þessari blessuðu síðu. Já gleðilegt nýtt ár allir saman árið sem var að líða er búið að vera heldur betur viðburðaríkt en það byrjaði að sjálfsögðu með bestu gjöfinni þegar að litli snúllinn minn kom í heiminn á öðrum degi ársins, mamma varð fertug, kallinn minn 25, ég tók eina af betri ákvörðunum lífsmíns en það var byrja hjá Íslensku vigtararáðgjöfunum, við veltum bílnum okkar sem varnú ekki mjög gaman enþað sluppu allir heilir á húfi sembetur fer, fyrirtækið okkar hélt upp á 1 árs afmælið með pompi og prakt já og svo varð stóri snúllinn minn 3 ára á síðast degi ársins enda hefðiþetta ár ekki getað endað betur. Við erum búinn að hafa það svo gott um jólinn og áramótinn ég var nú ekki neitt mjög danskakúrs dönnuð um jólin og áramótinn en tók 100 % viku milli jóla og nýja ársins, en ég passaði mig samtá að borða grænmetið með og stundaði hreyfingu aðauki enda marg borgaði það sig þegar að ég mætti í vigtunn í dag en ég fór bara upp um 400 grömm sem ég er mjög sátt við þar sem ég bjóst við töluverðu meira eftir allt átið svo ég er sátt svo nú er ég búinn að kött á allt svindl og byrjuð 100% aftur enda þýðir ekkert annað þegar maður er kominn svona langt ég er alveg farinn að sjá lokamarkið glitra þarna framm undan og ef ég ætla að ná því fyrir 1 mars verður maður að fara að herða sig einungis c.a. 11 kíló eftir. Annars var ég beðinn um að koma í viðtal í vikunni um miðjan desember sem myndi byrtast í fyrsta tölublaðinu á nýju ári og ég var alveg til í það og svo á þriðjudeginum fyrir jól var hringt í mig ég spurð hvort að ég gæti mætt í viðtalið á þriðjudeginum og svo í myndatöku á föstudeginum fyrir jól ó my þetta var pínu stress enda nóg að gera svona rétt fyrir jólinn og ég var eins og ég veit ekki hvað um hausinn, svo það var ekkert anna að gera en að hringja í yndislegu hárgreiðslukonuna mína og grát byðja um tíma í klippingu og strípur og þessi elska reddaði mér alveg gjörsamlega enda er ég ótrúlega ánægð með hárið mitt. Ég mætti svo í viðtalið sem gekk mjög vel og fór svo í myndatöku á föstudeginum sem gekk líka mjög vel og svo kom blaðið út í dag og ég er rosalega ánægð með út komuna og ég er búinn að fá rosalega jákvæð viðbrögð við þessu og mikið að hringingum sem innihalda hamingjuóskir. Svo fengum við góðarfréttir í gær en mágurminn og kærastan hans eru að fara að gifta sig næsta sumar ekkert smá spennandi til hamingju elsku Krúsi og Svava. Já Það var mikið stuð á gamlárskvöld hjá okkur enda átti stóri prinsinn minn 3 ára afmæli  og þarsem litli snúlli átti svo 1 árs afmæli þann 2janúar slógum við saman afmælisveislum þeirra buðum mömmu,pabba,tengdó og systkinum okkar í mat og svo var sko SPRENGJUPARTÍ á miðnætti endaeiga strákarnir sprengjusjúka afa,en við græddum á því þar sem við þurftum ekki að kaupa eina einustu rakettu, þar sem afarnir sáu alveg um að flugeldasölurnar. Já ég byrjaði nýja árið á að sækja um vinnu á leikskólanum sem ég var að vinna á fyrir 3 árum síðan og fékkvinnuna um leið og litli snúllinn minn er búinn að fá leikskólaplás á sama leikskóla og að öllum líkindum byrjum við bara strax á mánudaginn sem er mjög spennandi mig hlakkar bara til að byrja að vinna aftur og eignast kannski smá pening loksins. Já litli sykurpúðinnhún systirmín á afmæli á morgunn verður 19 ára gellan til hamignju elsku sykurpúðinn okkar. Strákarnir ætla að gista hjá ömmu sinni og afa á laugardaginn þar sem þaueru að fara til útlanda þann 18 jan. og verða í 2 vikur ohhhh værisko alveg til í að fara með þeim, við vorum að spá í nota tækifærið og færa strákana saman í hjónaherbergið okkar og fara sjálf inn í barnaherbergið en við sjáum bara til þar sem kallinn er enn að drepast í bakinu og ég líka þar sem ég var svo heppinn aðfljúga á hausinn og ekki bara einu sinni heldur 2 sinnum og ég fékk alveg vænan hnikk á bakið í bæði skiptinn, þakka bara fyrir að vera ekki enþá með 44 auka kílóin mín á mér þá hefði þetta öruglega farið verr. Jæja ætli égláti þetta ekki duga enda erþetta ágætis langloka vill bara óska ykkur gleðilegs árs og vona að árið verði ykkur heillaríkt og léttara í allri þeirri merkingu á þessu orði kveðja Anna Panna sem ætlarsér aðverðaen léttari á nýju ári       

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 23:17:27 / Bjalla67

Úpps gleimditilkynningarskyldunni

Ég bara steingleimdi að blogga í gær sorry. En það fóru 900gr og því farinn 43,9 kíló ohhh hvað maður verður  pirraður þegar vantar bara skitinn 100 grömm upp á slétta tölu. Svo nú eru 12,1 kíló í markmið ég er búinn að setja mér markmið um að reyna að ná þeim af fyrir brúðkaupsafmælið mitt þann 1 mars nk. en þá eigum við 4 ára brúðkaupsafmæli og 12 ára sambandsafmæli vá að hugsa sér hvað tíminn er fljótur að líða og ég er að verða búinn að vera með manninum mínum helminginn af ævi minni vá það er sko heví mikið sérstaklega þegar margir sem eru á aldri við mig er búnir að fá nóg eftir nokkra mánaða samband. En ég get sko alveg sagt ykkur eins og er að ef að einhver hefði sagt mér þegar að við vorum að byrja saman að ég ætti eftir að eignast börn með honum og giftast honum hefði ég öruglega hlegið mig máttlausa enda byrjaði þetta nú svona meira eins og mjög góður vinskapur sem þróaðist út í eitthvað meira og svo enþá meira enda gæti ég ekki hugsað mér lífið án hans og barnanna minna það þyrfti að senda mig upp á Reykjalund til að kenna mér að lifa ef að eitthvað myndi koma fyrir hann eða börnin mín. Púfff maður er bara kominn út í einhverja brjálæðislega væmni hérna en er það ekki í lagi svona rétt fyrir jólinn, er það ekki akkurat tíminn til að þakka fyrir hvað maður á yndislega fjölskyldu. Ég ætla að reyna að finna mér jólaföt um helgina, langar svo að vera í kjól einhverra hluta vegna en ekki samt svona galakjól endilega bendið mér á einhverjar búðir sem ég get kíkt í er nefnilega handónýt að versla mér föt og stend mig í því endurtekið að skoða xxl stærðirnar þó svo ég sé nánast kominn í stærð14 alla vegna er 16 orðið of vítt á mig en maður gerir þetta bara af gömlum vana enda er hausinn á mér ekkert alveg að með taka þetta enþá að ég sé ekki svona rosalega feit eins og ég var,mér alla vegna finnst ég ekki vera orðinn þannig að ég geti kallað mig granna enda á ég alveg 12 kíló eftir en ég er alla vegna orðinn grennri en ég var. Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili kveðja Anna Panna  


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 22:23:44 / Bjalla67

Vigtunardagur

Vigtun í dag eins og alla miðvikudaga ég var mjög ánægð með tölur dagsins en það fóru 1,9 kíló og því farinn 43 kíló allt í allt, svo nú eru aðeins 13,4 kíló eftir í loka markmiðið mitt. Ég er búinn aðákveða hvað ég ætla að leyfa mér um jólinn og áramótinn og það verður bara að hafa það þó að ég þyngist enda eru bara jól einu sinni á ári og til hvers að vera að þessu ef að maður má ekki leyfa sér eitthvað smá annað slagið. Ég hef haft það þannig fyrir mig að ef að það er eitthvað sérstakt um að vera ákveð ég fyrir fram hvað ég ætla að leyfa mér og í hvað langan tíma, ég leyfi mér svo það sem ég var búinn að ákveða en um leið og tíminn er búinn sem ég var búinn að ákveða hætti ég straxog hellimér aftur út í þetta ogkem hausnum í rétta gírinn, ég veit það fyrir mig að ef að ég hefði ekki gert þetta annað slagið væri ég búinn að gefast upp fyrir löngu svo svona vill ég hafa þetta. Ég verða að segja ykkur frá frábæri uppskrift af brúnköku ég prófaði hana á sunnudaginn síðast og hún er rosalega góð borðaði sultu með og namm.

 

 



Brúnkaka:

 

 



30gr létt majones

30gr hveiti

25gr undanrennuduft

6tsk vatn

1/2tsk kanill

1/2 tsk brúnkökukrydd

11/2tsk sætuefni

1tsk vanillukorn/essen

1/2tsk hjartarsalt

1/2tsklyftiduft

 

 



Ölluhrært saman og deginu pakkað inn í plast og rúllað upp í pulsi, degið er sett inn í frysti í 20-30 mín.og síðan tekið útog skorið í litla bita bakað við 200 gráður í 2-3 mín.kökunum snúið við og  bakaðar áfram í3-4mín mæli með að fylgjastvel meðþeim á meðan. Borið framm með blandaðri berjasultu sykurlausri að sjálfsögðu og góðri lyst verði ykkur að góðu.

 

 



Í þessari uppskrift notar maður 1 dagskammt af fitu og 6 extra 2

 

 



 

 



Ég mæli eindregið með síðu sem heitir opskriftsamling þar er að finna góðar og einfaldar uppskriftir af mat og kökum og þetta er allt DDV uppskriftir helsti kosturinn er að undir hverji uppskrift er tekið framm hvað maður notar mikið af hverjum skammtit.d. mjólkurskammti, fituskammti og svo frammvegis, ég er með link inn á síðunni minni inn á þessa síðu kalla hana mjög góð dönsk síða. Jæja ætla að láta þetta duga í bili svo verið hress og ekkert jólastress þar sem þau komasama hversu stressuð við verðum svo nú er um að gera að njóta þeirra alla vegna ætla ég að gera það kveðja Anna Panna


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 12:54:25 / Bjalla67

vigtun

Ussss,ussssusss ég var greinilega alltof góð við mig þessa vikuna og fagnað aðeins of mikið að ná 40 kílóa múrnum því ég bætti á mig 700 grömmum, svo nú er bara að bretta upp ermar og taka á fitupúkanum af krafti ef að ég ætla að ná jólamarkmiðinu mínu. Ég hef nú svo sem ekki mikið annað að segja annað en að kallinn minn liggur heima greyið og getur hvorki hreyft sig né staðið upp því hann fór í bakinu á sunnudaginn svo nú liggur hann á hitapoka, japplandi á bólgueyðandi og verkjastillandi svo vonandi að honum fari að skána greyinu svo hann komist í vinnuna það fer nefnilega frekar mikið í skapið á honum að geta ekki gert neitt. Jæja fleyra var ekki í fréttum, fréttir verða næst sagðar þann 6 des. hí hí,hí kv. Anna Panna

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 18:10:46 / Bjalla67

Vú hú,hú,hú

Jæja ég náði aldeilis að snúa syndinni upp í sigur, þetta var sko heví vigtunn ég náði sko þremur sigrum í einu, númer eitt tók ég sko tæbóspark á 40 kílóamúrinn með því að skella mér í -41,8 takk fyrir(það fóru 3,5 kíló af á síðustu 2 vikum), númer tvö ég náði jólamarkmiðinu mínu aftur sem ég setti mér eftir að ég náði því síðasta svo nú verð ég að búa til nýtt og númer 3 það heilsaði mér nýr tugur og vá hvað hann er fallegur og sá næsti verður en fallegri. Núna á ég 14,6 kíló í lokamarkmiðið mitt og mér finnst það sko ekki neitt miðað við það sem beið mín þegar að ég hóf þetta allt saman fyrir 30 vikum síðan. Ég var beðinn um að vera á fundi og það var nú ekki málið en svo var ég látinn standa upp fyrir framan alla til að segja mína sögu og vá ég roðnaði niður í rass og táraðist af stressi svo það var frekar erfitt að byrja en þetta lagaðist aðeins þegar að á leið en um leiða og ég settist niður var ekkert mála að tala og segja mínar skoðanir alveg furðulegt, en samt er þetta ákveðinn framför því fyrir nokkrum mánuðum hefði ég aldrei látið mér detta það til hugar að tala svona fyrir framan ókunnugt fólk en þetta kemur með æfingunni. Ég fékk líka rosalega flottan pott frá þeim í verðlaun hann á sko eftir að koma sér vel við eldamenskuna,ég er að spá í að splæsa í pönnu hjá þeim vantar svo góða pönnu sem maturinn festist ekki við. Annars er allt við það sama mæti í ræktina, vinnuna heim að elda, borða,baða, svæfa, þrífa og sofa ótrúlega viðburðar snautt svo sem en hver þarf eitthvað meira þegar maður á svona yndislegan mann og börn. Jæja læt þetta duga í bili kveðja Anna Panna sem er enn nær því að vera Anna Granna hí,hí,hí

» 9 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 12:43:03 / Bjalla67

Löngu kominn tími á blogg

Okey frænka fann smá tíma. Takk fyrir síðast.

En alla vegna þá héldum við upp á afmæli hjá kallinum og fyrirtækinu þann 10 nóvember, og dagan á undan vorum við búinn að vera að vinna til 2 á nóttunni við að klára allt sem þurfti að klára og eins og gefur kannski að skilja þá fór mataræðið gjörsamlega í rúst þessa daga en ég var samt dugleg að mæta í ræktina en komst að vísu ekki á föstudeginum vegna loka undirbúnings á afmælinu. Ég var búinn að ákveða að leyfa mér að fá mér köku og allt bara sem mig langaði í og ég gerði það alveg framm á miðnætti á laugardeginum fengum okkur rosa gott að borða á laugardagskvöldinu enda var þá afmælisdagurinn hjá kallinum mínum. En á slaginu 12 var ég alveg hætt öllu rugli og byrjuð upp á nýtt. En þetta sukk mitt kostaði mig 1,5 kíló upp á við (vigtaði mig í hreyfingu á mánudeginum) og brjálæðislegt samviskubit og eiginlega matarþynku nokkurskonar því mér leið djöfulega í nokkra daga á eftir. En afmælið var rosalega skemmtilegt fyrir utan smá óhapp í lokinn en þetta endaði allt betur en á horfðist, maðurinn minn fékk fullt af flotum gjöfum og fyrirtækið líka takk kærlega fyrir okkur. Ég fór í ræktina á mánudaginn og þriðjudaginn en svo varð litli stubbinn minn veikur svo að ég var heima með hann miðvikudag,fimmtudag og föstudag og vá hvað ég var að bilast að vera svona heima og komast ekkert í ræktina og leið verst að komast ekki í tíma hjá Guðbjörgu en ég skellti mér í sund í gær áður en ég fór að vinna var voða dugleg og synti 1 kílómetra var bara helvíti ánægð með mig. Ég komst ekki í vigtunn þessa vikuna svo að ég veit ekkert hvernig þyngdarstaðan er fyrir utan þessa vigtunn mína í Hreyfingu á mánudaginn en það er ekki alveg að marka hana þar sem engar tvær vigtir eru eins og ég treysti bara á vigtararáðgjafavigtunina enda búinn að vera vigtuð þar frá upphafi, en ég bíð bara spennt eftir næstu vigtunn og því hvort að ég hafi náð að snúa syndinni upp í sigur. Er annars búinn að setja mér nýtt jólamarkmið og hlakka til að reyna að ná því. Jæja held að þetta sé orðið ágætt í bili og skal reyna að láta ekki líða svona langt þangað til næst kveðja Anna Panna 


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 22:21:49 / Bjalla67

Vigtunardagur í dag

AAAAARRRRRRRGGGGGGG var búinn að skrifa þvílíkt mikið og það strokaðist allt út. En það var vigtunn í dag og það fóru 2 kíló þessa vikuna og því farinn 38,8 kíló allt í allt, bara 1,2 kíló í að fella 40 kílóa múrinn reyni að stefna á að ná því fyrir afmælið hjá bóndanum mínum sem er 11 nóvember en ætla samt að hafa smá vara á því svo ég verði ekki geðveikt fúl ef að ég næ því svo ekki. Ég á svo yndislega tengdaforeldra að þau gáfu mér framhaldsnámskeið í Hreyfingu þetta voru verðlaun til mín frá þeim þar sem ég er búinn að standa mig svo vel, ég fór alveg í rusl þegar að þau gáfu mér þetta enda átti ég engan veginn von á þessu, en ég er búinn að kaupa mér kortið og búinn að fara í fyrsta tímann og þetta er sko mikið erfiðara sem er bara mjög gott enda er maður alvegkominn á það stig að geta ferið að pressa á sig en meira í ræktinni, en ég er búinn að setja upp prógramm til að fylgja í ræktinni ég mæti 3 sinnum í viku í tíma, 2 sinnum mæti ég og geng rösklega í 20 mínútur á hlaupabrettinu, hleyp svo í 15 mínútur og smá lengi það í hvert skipti, fer svo í 20 mínútur á rassabanatæki, geri svo 100 magaæfingar og teyjur enda svo vikuna á að mæta í extreamtíma klukkan 9 á laugardagsmorgnum það er albeg geðveikt hvað manni líður vel á eftir.Ég var að ummálsmæla mig í fyrrakvöld og ég ver búinn að missa 37,5cm samanlagt af líkamanum síðan 11 september og það er alveg hellingur þegar maður skoðar það á málbandinu. Já eins og ég kom inn á áðan á maðurinn minn afmæli þann  11nóvember verður 25 ára og það er sko verið að plana svakalegt partý en það verða um 300 manns í afmælinu en tek það framm að það verður haldið upp á 1 árs afmælið hjá fyrirtækinu okkar líka, ég var að pannta smá bjór fyrir geymið 846 stykki takk fyrir enda dugir ekkert minna ofan í allan þennan fjölda mig hlakkar alveg rosalega til og ætla að leyfa mér að fá mér snittur og smá auka kók light þó það þýði það að ég þyngist smá eða standi í stað enda er ekki á hverjum degi sem kallinn verður 25 ára. Jæja ætla að láta þetta duga í bili kveðja Anna Panna sem minkar með hverjum deginum


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 23:49:41 / Bjalla67

Góður dagur

Vigtunardagur í dag og það kvöddu 900 grömm þessa vikuna og því farið 36,8 kíló í allt gæti ekki verið betra. Fór í næst síðasta tíman minn á námskeiðinu í dag svo er síðasti tíminn á föstudaginn. Það byrjar svo nýtt námskeið á næsta þriðjudag og ég kemst ekki á það að öllum líkindum þar sem ég á engan pening það er náttúrulega bara svekkelsi þegar maður er kominn svona vel af stað, ég þarf alla vegna að vera mjög heppinn og vinna pening í happdrætti eða einhverju álíka ef að ég á að komast, en þar sem ég er svo heppinn í ástum en óheppinn í spilum á ég ekki von á að það gerist, verð þá bara að éta þessi orð ofan í mig með öllu grænmetinu mínu ef svo ólíklega vill til að það gerist. Litli snúllinn minn er kominn með í eyrun og með mjög slæman hósta er kominn á en einn sýklalyfjkúrinn og á að koma aftur eftir viku í meira tékk vona svo innilega að þetta veikinda vesen fari að taka enda. Ég fór í afmæli til frænku minnar á síðasta laugardag það var mjög gaman og eiginlega var afmælisgjöfinn frá okkur skemmtilegust þ.e.a.s. mér,manninum mínum,mömmu,pabba,systir minni og kallinum hennar, einni frænku minni og blómabúðinni sem við vinnum í en við gáfum henni mömmu hennar í afmælisgjöf þar sem hún býr í Danmörku keyptum við far fyrir hana fram og tilbaka svo hún gæti komið í afmælið, það var alveg yndislegt að sjá svipinn á frænku minni þegar að hún sá mömmu sína enda hafði hún ekki hugmynd um að hún myndi koma, kem ekki til með að gleyma þessum svip hí,hí,hí. En þetta var mjög gaman mikið kjaftað og drukkið( ég var bara í kók light og vatni tek það framm) svo var líka svo gaman að fá allt þetta hrós frá fólkinu í veislunni hvað ég liti vel út enda fær maður aldrei leið á því. Já ég gleymdi að segja ykkur Kristín vigtararáðgjafi gaf mér rosalega flotta svuntu þar sem ég er búinn að standa mig svo vel svo sagði hún við mig að sig langaði að taka mig með sér í sjónvarpið í þáttinn 6-7 á skjá einum eftir áramótinn vá ég fékk alveg slag bara við tilhugsunina enda er ég feimnasta manneskja ever  og verð eins og Tommi tómatur í framan þegar að ég þarf að tala fyrir framan fólk sem ég þekki ekki og hvað þá svona opinberlega, ég var nú samt að hugsa það í dag að þetta væri mikið aðhald fyrir mann að vera búinn að koma framm í sjónvarpi og lýsa árangrinum sem maður hefur náð og þá þýðir náttúrulega ekkert fyrir mann að slaka á og bæta á sig aftur því þá væri maður sjálf titlaður hræsnari að vera búinn að koma framm opinberlega og "monta sig" innan gæsalappa af árangrinum og missa sig svo í eitthvað bull. En ég var nú samt mest að hugsa um maður gæti kannski verið góð fyrirmynd og hvatning fyrir aðra og gaman ef maður getur sýnt að þetta er hægt ef viljinn er fyrir hendi jæja vona að þið skiljið eitthvað í þessu bulli hjá mér kveðja Anna Panna

P.S. vá var að lesa yfir þetta blogg oglít út eins ogalgjör egóisti en það verður að hafa það nenni ekki að byrja upp á nýtt, sitt sýnist hverjum love you all


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 14:12:31 / Bjalla67

Ó happy,day, ó happy day

Var í vigtunn og það fóru 1,5 kíló af þessa vikuna og samanlagt 35,9 takk fyrir.Nú á ég aðeins 4,1 kíló í næsta markmið þar sem ég sló það síðasta í dag og það 900grömmum betur. Annars er allt gott að frétta fyrir utan veikindi alls staða litli snúllinn minn er svo svakalega kvefaður að ég þori ekki að fara með hann út svo hann fái nú ekki lungnabólgu. Mamma var lögð inn á spítala í gær vegna lungnabólgu og verður að öllumlíkindum inni í 3 daga er með sýklalyf í æð og skemmtileg heit ekki alveg eitthvað fyrir mömmu enda er hún með lækna og spítala hatur á háu stigi og fer helst ekki til læknis nema hún þurfi liggur við að skríða þangað. Svo var mágur minn lagður inn í fyrra kvöld með lungnabólgu svo það eru allir veikir í kringum mann og það er á mörkunum að maður þori að hitta nokkurn mann svo maður verði nú ekki veikur. Komst ekki í ræktina í gær og ekki í morgun heldur enda er ég kominn með fráhvörf ætla að reyna að skella mér í sund í kvöld ef að kallinn verður ekki þeim mun seinna búinn að vinna. Ég er að fara í afmæli hjá uppáhalds frænku minni á laugardaginn, hlakka rosalega til er en að spá í afmælisgjöf hummmm hugsi,hugsi. Hlít að detta niður á eitthvað á endanum. Jæja hugsa að ég láti þetta næja í bili kveðja Anna Panna 

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 13:39:32 / Bjalla67

Fjúfff

Slapp fyrir horn var viss um að ég væri búinn að þyngjast þar sem þetta er ekki búið að vera neitt sérstaklega góð matarvika en ég léttist nú samt um 400gr og því farinn 34,4 kíló allt í allt, er búinn að vera með eitthvern vibba í maganum og átt mjög erfitt með að klára matinn minn en ég er bara mjög sátt við þetta, sérstaklega þar sem ég var vigtuð á mánudaginn og þá hafði ég þyngst um 1,2 kíló sem ég skil ekki alveg hvernig ég á að hafa farið að því þar sem ég er ekki búinn að gera neitt vitlaust nema hef ekki alveg náð að klára að borða. Ég mældi ummálið á maganum á mér í morgunn og það eru farnir 3 cm á 4 vikum mér finnst það bara helvíti gott. Ég er sko alveg búinn að vera að standa mig í ræktinni, það var hertími á föstudaginn síðasta og ái harssperur á laugardaginn en ég hafði mig nú samt í að mæta í hörkuþrek tíman minn á laugardagsmorgninum og ég var orðinn góð af harssperrunum um leið og ég fór að hitna. Mig dauðlangar á framhaldsnámskeið en er ekki alveg að sjá hvernig ég á að hafa efn á því en ég ætla að reyna að brjóta upp alla sparibauka( ekki samt hjá strákunum legst ekki svo lágt ;)) og leita í öllum dollum til að sjá hvort ég nái ekki að skrapa saman fyrir námskeiðinu. Ég er mest hrædd um að ég detti út úr hreyfingunni ef að ég fer ekki aftur á svona námskeið enda er þetta mikið skemmtilegra heldur en að fara út að hlaupa eða vera einn inn í æfingarsal, svo er maður líka búinn að kynnast alveg fullt af stelpum og þær ætla flestar að fara á framhaldsnámskeiðið. Jæja ætli þetta sé ekki orðið fínt í bili kveðja Anna Panna

P.S Elsku Óskar Bjarmi til hamngju með 3 ára afmælið vona að þú hafir það gott í dag.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 00:14:13 / Bjalla67

Jibbí

Það var gaman að mæta í vigtun þessa vikuna þar sem ég léttist um 3,2 kíló og þá eru farinn 34 kíló allt í allt og ég er búinn að ná jólamarkmiðinu mínu, svo nú er bara að búa sér til ný markmið. Þetta gengur svo ótrúlega vel að það er lygini líkast, það var spinning tími í dag á námskeiðiinu og svo verður herþjálfun á föstudaginn, við komumst ekki út að borða á síðast föstudag þannig að við förum núna á föstudaginn.Læt þessa tilkyningarskyldu duga kveðja Anna Panna

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 22:59:03 / Bjalla67

Er á lífi

Halló ég ætlaði aðalega að láta vita að ég væri á lífi, fór í vigtunn í gær og stóð í stað ohhh það er ógeðslega fúlt en samt betra en að þyngjast, samt er ég alveg að fara rétt eftir öllu, vona bara að þetta séu vöðvar að koma betur í ljós. Finn alveg svakalegan mun líkamlega,held út 70 mínútna hörkuþrek tíma, get hlaupið í lágmark 5 mín á hlaupabretti mað stilt á 9,5 í hraða, get tekið 10 armbeyjur(á hnjánum) og er alltaf að bæta mig meir og meir í þrekinu, mér finnst þetta helvíti góður árangur á 4 vikum miðað við það að ég gat ekki hlaupið á milli ljósastaura og ég er ekki að ýkja það. Hlakka voðalega mikið til á morgunn við ætlum nefnilega að fara allur hópurinn út að borða á Salatbarinn eftir tímann svo það verður örugglega ágætlega mikið kjaftað þar sem við erum c.a. 30 kellur. Það veðrur spining tími á morgunn hjá okkur svo maður verður væntanlega hjólbeinóttur annað kvöld;). Hún Dagrún frænka mín var svo elskulega að hringja í mig í kvöld og bjóða  mér á kaffihús með sér og vinkonum sínum en ég gat því miður ekki þegið það þar sem ég var búinn að láta heimilsstörfinn bíða aðeins of lengi og komst ekki undan þeim lengur, en takk samt fyrir gott boð kemst vonandi næst þ.e.a.s. ef mér veðrur boðið var svo mikill dóni að gleyma að hringja og af þakka uss illa upp alinn ha,ha,ha. Jæja ætla að fara og leggja mig til að vakna nú hress og kát á morgunn kveðja Anna Panna verðandi vöðvatröll     


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 01:16:19 / Bjalla67

jibbí

Vá það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég hef varla haft tíma í að blogga undan farið enda er svo sem ekkert merkilegt um að vera, ætli ég komi ekki bara til með að setja inn nýjustu vigtunartölur og svo ef eitthvað markvert verður um að vera. Ég fór alla vegna í vigtunn í dag og það fóru 1,1 kíló og því farinn 30,8kíló svo ógurlegi 30kílóa múrinn er fallinn með glans :haha: égernúna 601grammi frá jólamarkmiðinu mínu svo égerlangt á undan áætlun sem er ekkert leiðinlegt sko. Annars gengur allt svo vel og mér líður vel er dugleg í ræktinni og eiginlega litlu við það að bæta. Það verður fjör á föstudaginn því þá ætla litlusnúllarnir mínir að gista hjá ömmu sinni og afa og við ætlum að skella okkur út erum að fara í opnunar partí hjá nýju verkstæði og svo verður farið eitthvað á eftir, munur að vera orðinn verkstæðiseigandi og fá boðskort í veislur ;) ef ég þekki vinnufélaga kallsins rétt verður eitthvað djamm framm á laugardagsmorguninn. Ég erannars að fara að vinna alla helgina og helgina þar á eftir var líka að vinna á síðustu helgi en maðurverður víst að láta sig hafa það þegar manni vantar pening er það ekki. Ég er að reyna að fá kallinn til að samþykja að borga fyrir mig Cabasnámskeið en það er tjónamatskerfi fyrir bíla því ef ég fer á það verð ég fyrsta konan sem fæ Cabasskoðunarréttindi á Íslandi alla, vegna en maður verður víst að fá samþyki hjá þeim sem borgar, hann var nú nokkuð jákvæður með það í dag enda hugsar hann sér öruglega gott til glóðarinnar að losna við það sjálfur að skoðabílana enda hefur hann víst nóg annað að gera svo nú er bara að bíða og sjá hvenar næsta námskeið verður. Jæja ætla að láta þetta nægja í bili og þið verðið bara að fyrirgefa mér þetta bloggleysi kveðja Anna Panna upptekna   

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 16:53:43 / Bjalla67

Jæja

Ég náði ekki að brjóta 30 kílóa múrinn í dag þar sem ég þyngdist um 100 grömm en það er einungis út af vöðvasöfnun svo ég græt þetta ekki neitt enda var ég alveg undirbúinn undir að það myndi gerast þegar að ég byrjaði að æfa. En mér er eiginlega alveg sama hvað vigtinn segir þar sem mér líður svo vel og finn muninn á fötunum svo er ég líka farinn að finna vöðva til dæmis á upphandlegnum sem höfðu verið í feluleik sem er nú ekki slæmt, en ég held bara mínu striki áfram. Fór í tíma í dag geðveikt gaman eins og alltaf aðaláhersla á maga og bak í dag fínar æfingar og maður svitnar vel. Jæja búinn með tilkynningar skilduna svo ég ætla að fara og sinna börnunum mínum kveðja Anna Panna

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010